16.11.2011 | 15:55
Miðaldakirkja
Já...... ekki er öll vitleysan eins.
Mér dettur fyrst í hug búðin sem er að verða fullbyggð við Skálholtskirkju og til stendur að rífa því það vantar eitthvað á staðsetningarleyfið.
Svo fer ég undireins að hugsa um hver á að leggja fram þessa peninga kannski ríkið??? allavega einhverjar ábyrgðir. Ég fullyrði að ferðaþjónustuaðilar eiga ekki þessa peninga en kannski á kirkjan þá í sínum kistlum.
Þetta er auðvitað mjög flott verkefni en vitiði, mér finnst þetta samt algerlega galið, um leið og við fáum fréttir af því að sjúklingar sem eru í langtíma meðferð gætu þurft að greiða allt að 400 þús. á ári fyrir lyf og læknishjálp vegna allsleysis í ríkiskassanum þá finnst mér að ef finnast einhversstaðar peningar þá verði þeir fengir þó ekki sé nema að láni til að koma í veg fyrir að verði farið svona með fólk.
Ég er nefnilega algerlega sannfærð um að þetta verður ekki sjálfbær framkvæmd.
|
Miðaldakirkja rísi í Skálholti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2011 | 09:53
Hinsta ósk Óla Tynes.
Ég held að það sé svo komið í þessum HRIKALEGA niðurskurði að lífshættulegt geti verið fyrir sjúklinga. Það hefur oft verið sagt í gamni að það þurfi góða heilsu til að vera á sjúkrahúsi, en nú er trúlega svo komið að það þarf meira til.
Þessi skoðun mín er ekki vegna þess að ég haldi að fólkið sem starfar þar geri hlutina ekki af alúð, heldur vegna þess grimma niðurskurðar sem hefur verið og er boðaður áfram á næsta ári. Ég hef oft heyrt það líka að á Líknardeildinni sé fólkið eins og það væri af englaættum svo natið og gott við sjúklinga og aðstandendur. Starfsfólkið á sjúkrahúsunum og eflaust þar líka er bara orðið allt of fátt, það má ekkert út af bera td. veikindi, auknu álagi fylgir þreyta sem gerir okkur vanhæfari til erfiðra starfa, allavega mig.
|
„Hinsta ósk bróður míns“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2011 | 14:45
Kæra á Landsbankann.
Hvernig getur það gerst annars staðar en í VIÐURKENNDU bananalýðveldi að bankinn hafi með það að gera hvort hann telur lánið ólöglegt????
Dómur er fallinn á báðum réttarstigum um að sambærilegt lán sé ólöglegt.
Allir vita reyndar að menn eru mis JAFNIR fyrir lögum og réttindum í viðskiptum sínum ekki bara við bankana heldur allt heila kerfisbáknið.
En ég segi: látið ekki deigan síga og vonandi hafa fleiri í ykkar sporum sama kjark.
|
Kærir Landsbanka fyrir þjófnað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2011 | 13:02
Fangelsismál.
Það er bara eins og menn dragi afgreiðslu þessa málaflokks viljandi. Það getur ekki verið að ef hægt að spara t.d. á þennan hátt að menn geti leyft sér að skoða það ekki með jákvæða niðurstöðu í huga, en ekki bara með kröfuna uppi um við viljum nýtt fangelsi annað kemur ekki til greina. Manni dettur líka í hug að hugsanleg koma fínna manna í íslensk fangelsi sem heldur örugglega áfram að dragast sé ástæða þess að þetta verður að vera FLOTT þeir eru vanir flottheitum, maður bara spyr??????
Kannski er þetta sama undarlega skoðunin um að við höfum efni á að byggja svona fangelsisbyggingu og svo hátæknisjúkrahúsið, en því miður við höfum ekki efni á að reka þau sem við höfum nú þegar.
Það er eitthvað hryllilega bogið við þetta.
|
Lausn þar til nýtt fangelsi rís |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.10.2011 | 14:05
Niðurfelling
|
Ákvörðun FME felld úr gildi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 25.10.2011 kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.10.2011 | 13:47
Hummer og fl.
Æi greyin Bónusfeðgar að hafa verið svona óheppnir með Hummerinn sinn.

En gott fyrir þá að hafa haft yfir 100 aðra bíla til afnota. Ég veit að allt venjulegt launafólk á að borga fullan skatt af þeim hlunnindum sem bílinn er metin á. Bíltegundin er tekin á nýjasta verði og svo eru afskriftir eftir aldri bílsins 2009-11 28%, 2006-2008 21%, 2005 og fyrr 18%, og taka skal fram að það á að reikna á alla þá bíla sem viðkomandi er með á sínum vegum, ekki bara einn.
Leikum okkur: 1 bíll 10mill. nýr sem er ekki ofáætlað fyrir fína menn, þá eru trúlega rúmlega 230 þús. mánaðarleg hlunnindi sem þeir eiga að greiða af tekjuskatt, sem er yfir 90 þúsund. Ekki skrítið að mönnum hafi fundist það ansi mikið af því það voru skattar og fundist kostur að sleppa við það. Ég held að þetta sé ekki ofreiknað hjá mér. Ég veit allavega 100% að ég hefði ekki efni á að hafa svona hlunnindi því launin dygðu ekki fyrir þeim.
Mér finnst stundum að maður hljóti að vera staddur í grínmynd þar sem efnið er samt dauðans alvara. Þvílík er endaleysan sem borin er á borð fyrir fólk.
|
Hummerinn var brotajárn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.10.2011 | 15:06
Evrópureglur úbbs.
Fjandinn hirði þessar Evrópureglur, hvort heldur það er um ljósaperur eða það sem mér skilst að komi þaðan, sem er ný reglugerð um að komi ómarkað fé af fjalli þá skuli það skotið og urðað sem næst réttinni. Neysla þessa er ekki til í dæminu því það þarf að vera hægt að rekja uppruna matvæla.
Hér áður fyrr fóru ómerkingar sem ekki tókst að finna rétta eigengur af jafnvel sem tekjur í sveitarsjóðinn og taldist þar búbót, en nú, nei þetta fer í urðun.
Hvað finnst fólki um svona háttalag, Mér finnst þetta hin fullkomna endaleysa.
|
Kostnaðarsöm ljósaperuskipti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.9.2011 | 11:52
Ætlaði að klappa var bitin
|
Ætlaði að klappa en var bitin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.8.2011 | 12:04
Nautaats slys
Mér finnst þetta "næstum" mátulegt á þetta fólk, og er þar með að segja auga fyrir auga.
Að kvelja nautin með þessum hætti til dauða er viðbjóðslegt og ég skil ekki í því að það skuli engin dýraverndarsamtök í heiminum tekið þetta á sína arma og bannað.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.6.2011 | 14:57
Bensíverðið
Mér fannst hálf ömurlegt að hlusta á Steingrím tala um að við værum með lágt bensínverð miðað við nágrannaþjóðir og að Norðmenn væru með 300, allir vita um launakjörinn í Noregi miðað við hér.
Ömurlegast finnst mér þó að hann skuli ekki bara segja eins og er að þetta sé hrikalegt verð og fyrir mjög stóran hóp þjóðarinnar ókleift, og að hann hafi áhyggjur af því að fólk ferðist ekki um landið í sumar vegna þessa og ferðaþjónustan verði af verulegum tekjum sem skili honum mun lægri upphæðum í virðisauka osfrv. nei ekkert í þessa veru bara að afsaka þetta eins og annað sem gert er eða ekki gert. Ég veit að hann er í vanda eins og mjög margir eru hvort sem þeir eru að afla tekna eða greiða út peninga. En þá er bara segja bara eins og er, HRIKALEGT VERÐ, HRIKALEGT ÁSTAND og hana nú.
|
„Skatthlutfall með því lægsta“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
álit
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 7595
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

